Wanyama í raðir Tottenham

Victor Wanyama og Erik Lamela hjá Tottenham eru orðnir liðsfélagar. …
Victor Wanyama og Erik Lamela hjá Tottenham eru orðnir liðsfélagar. Hér kljást þeir á síðustu leiktíð. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham keypti í dag miðjumanninn Victor Wanyama frá Southampton á 11 milljónir punda.

Wanyama, sem er 24 ára gamall Keníumaður, semur við liðið til fimm ára en hann hefur verið á mála hjá Southampton frá árinu 2013 þar sem hann lék 80 leiki og skoraði fjögur mörk.

Wanyama hittir fyrir hjá Tottenaham sinn gamla stjóra hjá Southampton, Mauricio Pochettino.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert