„Getum unnið England“

Wayne Rooney og Aron Einar Gunnarsson eiga örugglega eftir að …
Wayne Rooney og Aron Einar Gunnarsson eiga örugglega eftir að takast á í leiknum í Nice á mánudagskvöldið. AFP

„Við getum unnið England. Við höfum sýnt það síðustu árin að við getum lagt góð lið að velli og þar get ég nefnt lið eins og Holland, Tékkland og Tyrkland,“ sagði Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í Annecy í Frakklandi í dag.

Íslendingar mæta Englendingum í 16-liða úrslitunum í Nice á mánudagskvöldið og það verður fyrsta viðureign þjóðanna frá upphafi í mótsleik.

„Við erum líka raunsæir. Ef við spilum ekki okkar besta leik þá getum við tapað. Mér finnst við hafa verið að bæta okkur, bæði í leikjunum og á æfingunum og vonandi verður spilamennskan enn betri hjá okkur í leiknum á móti Englendingum,“ sagði Heimir Hallgrímsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert