Liverpool hefur komist að samkomulagi við Southampton um kaupverðið á Sadio Mane, en kaupverðið er sagt vera heilar 30 milljónir punda. Hann fer í læknisskoðun í dag áður en kaupin ganga í gegn.
Mane er frá Senegal og kom til Southampton fyrir tveimur árum. Á þeim tíma hefur hann skorað 21 mark í 67 leikjum, meðal annars tvívegis gegn Liverpool í vetur þegar Southampton fór með 3:2 sigur af hólmi.
Hinn 24 ára gamli Mane yrði þar með þriðji dýrasti leikmaðurinn í sögu Liverpool. Aðeins þeir Andy Carroll, sem keyptur var á 35 milljónir punda, og Christian Benteke, sem keyptur var á 32,5 milljónir punda, eru dýrari.