Nolito á leið til Man. City

Nolito er á leið til City.
Nolito er á leið til City. AFP

Spænski framherjinn Nolito er á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester City en gengið verður frá kaupunum í dag. Þetta kemur fram í erlendum miðlum í dag.

Nolito, sem er 29 ára gamall, er á mála hjá Celta Vigo á Spáni, en hann var einnig í spænska landsliðshópnum sem datt út í 16-liða úrslitum fyrir Ítalíu á dögunum.

Hann er á leið til Manchester City á Englandi en talið er að enska félagið borgi um 14 milljónir punda fyrir þjónustu hans. Hann fer í læknisskoðun hjá City í kvöld áður en hann skrifar undir langtímasamning.

Þetta verður annar leikmaðurinn sem Pep Guardiola fær til félagsins í sumar en Ilkay Gundogan kom frá Borussia Dortmund á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert