Zlatan til Manchester United

Zlatan Ibrahimovic er á leið til Manchester United.
Zlatan Ibrahimovic er á leið til Manchester United. AFP

Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic staðfesti á samskiptavef Twitter í dag að hann er á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United. Félagaskiptin hafa legið í loftinu í nokkurn tíma.

Zlatan, sem er 34 ára gamall, hefur verið á mála hjá franska stórveldinu Paris Saint-Germain síðustu fjögur ár en auk þess hefur hann leikið með liðum á borð við Ajax, Inter, Juventus, Milan og Barcelona.

Samningur hans við PSG rann út í dag en hann hefur verið í viðræðum við Manchester United síðustu vikur.

Jose Mourinho tók við liðinu af Louis van Gaal eftir tímabilið og er þetta þriðji leikmaðurinn sem hann fær til félagsins. Zlatan gerir að öllum líkindum eins árs samning við félagið með möguleika á öðru ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert