Zlatan er fullkominn fyrir Manchester United

Zlatan Ibrahimovic klæðist rauðri treyju Manchester United á komandi keppnistímabili.
Zlatan Ibrahimovic klæðist rauðri treyju Manchester United á komandi keppnistímabili. AFP

Fyrrverandi varnarmaður enska knattspyrnufélagsins Manchester United, Wes Brown, telur að Svíinn Zlatan Ibrahimovic muni standa sig vel í herbúðum félagsins á næsta keppnistímabili.

United á eftir að staðfesta komu hins 34 ára gamla sóknarmanns en Zlatan birti mynd á Instagram í gær þar sem hann tilkynnti að hann væri á leið til Manchester. 

„Þetta eru frábærar fréttir. Ég held að hann komi með eitthvað jákvætt til félagsins og orðsporið er gott,“ sagði Brown.

„Ég er viss um að aðrir leikmenn fylgi í kjölfarið á svona samningi og það er gott mál. Það segir sig sjálft að leikmannahópurinn verður betri með fleiri góðum leikmönnum og þá verður United að betra liði á vellinum,“ bætti Brown við.

„Zlatan er stór, sterkur, góður með boltann og skorar mörk. Ég held að hann sé fullkominn fyrir Manchester United.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert