Mahrez nálgast Arsenal

Mahrez fór á kostum í vetur.
Mahrez fór á kostum í vetur. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal er nálægt því að ganga frá kaupum á Riyad Mahrez frá Leicester City en það er Eurosport sem greinir frá.

Mahrez, sem var einn besti maður Leicester á síðustu leiktíð, hefur verið orðaður við stærstu félög heims síðan í janúar, en Eurosport greinir frá því í dag að Leicester hafi samþykkt 42 milljóna punda tilboð í leikmanninn.

N'golo Kante yfirgaf Leicester á dögunum og fór til Chelsea á meðan Jamie Vardy ákvað að framlengja samning sinn.

Leicester varð enskur meistari á síðustu leiktíð eftir algert öskubuskuævintýri en liðið hafnaði í 14. sæti deildarinnar árið áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert