Manchester United lánar leikmann

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur lánað Varela til Eintracht …
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur lánað Varela til Eintracht Frankfurt. AFP

Úrúgvæski hægri bakvörðurinn Guillermo Varela sem er á mála hjá Manchester United hefur verið lánaður til Eintracht Frankfurt sem leikur í þýsku efstu deildinni í knattspyrnu karla.

Varela gekk til liðs við Manchester United frá Penarol árið 2013, en hann var fyrstu kaup David Moyes, þáverandi knattspyrnustjóra Manchester United, til félagsins. Varela hefur leikið fjóra leiki með liðinu síðan þá.

Varela var lánaður til Real Madrid tímabilið 2014 til 2015 þar sem hann lék 33 leiki með varaliði félagsins og skoraði í þeim leikjum eitt mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert