Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Manchester United á Englandi, mun spila í treyju númer 9 á komandi tímabili en Anthony Martial var með númerið á bakinu á síðustu leiktíð.
Sænski framherjinn gekk til liðs við United í sumar á frjálsri sölu en þegar hann samdi við félagið var honum lofað að hann fengi að velja sér treyjunúmer.
Hann valdi númerið 9 en Martial var með það númer á síðustu leiktíð. Samkvæmt frétt frá RMC Sport var Martial ekki spurður hvort Zlatan mætti taka númerið hans.
Ljóst er að Zlatan mun leika í níunni á komandi tímabili og gæti þetta því skapað óþægilegt andrúmsloft innan klefans en Frakkinn var með bestu leikmönnum liðsins á síðustu leiktíð.