Velski miðjumaðurinn Joe Allen er á leið frá Liverpool til Stoke. Bæði leika liðin í ensku úrvalsdeildinni en Liverpool samþykkti á dögunum 13 milljóna punda tilboð Stoke í Allen.
Allen lék afar vel í sumar þegar Wales komst í undanúrslit á EM í knattspyrnu en hann var valinn í úrvalslið mótsins af UEFA.
Allen, sem er 26 ára gamall, gekk til liðs við Liverpool frá Swansea fyrir fjórum árum. Honum hefur ekki gengið vel að festa sig í sessi hjá Liverpool og virðist nú á förum.