Januzaj til Sunderland?

Gylfi í baráttu við Adnan Januzaj á Old Trafford.
Gylfi í baráttu við Adnan Januzaj á Old Trafford. AFP

Svæðisblaðið The Northern Echo greinir frá því að David Moyes, nýráðinn knattspyrnustjóri Sunderland, hafi hug á að fá Adnan Januzaj til liðs við félagið frá Manchester United. Óvissa ríkir um framtíð Januzaj eftir ráðningu José Mourinho sem knattspyrnustjóra félagsliðsins. 

Januzaj er 21 árs gamall Belgi sem spilar ýmist á vængnum eða sem framliggjandi miðjumaður. Hann hefur átt erfitt uppdráttar síðasta ár hjá United og í byrjun síðasta tímabils var hann sendur á lán til þýska liðsins Dortmund en fann sig ekki þar. 

Hann vakti athygli þegar hann spilaði undir stjórn David Moyes á tímabilinu 2013–2014 þegar Moyes var knattspyrnustjóri Manchester United. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert