Guardiola bannar pizzuát

Pep Guardiola
Pep Guardiola AFP

Spánverjinn Pep Guardiola er byrjaður að innleiða aukinn aga hjá enska félaginu Manchester City eftir því sem fram kemur í viðtali við leikmann liðsins Gael Clichy. 

Clichy segir Guardiola hafa bannað leikmönnum að borða pizzur. Einnig séu einhverjar tegundir safa komnir á bannlista ásamt ýmsum mat sem Clichy kallar þungann. 

Allir leikmenn aðalliðsins hafa fengið fyrirmæli sem þeir eiga að fara eftir. Þar eru þyngdarviðmið og þeir sem eru of þungir fá ekki að æfa með aðalliðinu. Nokkrir eru í þeim sporum sem stendur samkvæmt Clichy. 

„Sumir gætu haldið að þetta sé bara venjan og svona eigi þetta að vera. En sannleikurinn er sá að svona eru þessu ekki alltaf farið og það veit ég eftir að hafa verið lengi í boltanum. Þetta er mjög hressandi og spennandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert