Enska knattspyrnufélagið Stoke City tilkynnti rétt í þessu að austurríski kantmaðurinn Marko Arnautovic yrði um kyrrt í herbúðum félagsins.
Arnautovic hefur verið mikið orðaður við önnur félög undanfarið, mest við Everton. Stoke tilkynnti á Twitter að framlengt hefði verið við hann til fjögurra ára.
Arnautovic kom til Stoke frá Werder Bremen árið 2013 og hefur skorað 16 mörk í 93 leikjum með liðinu í úrvalsdeildinni. Hann var í austurríska landsliðinu sem tapaði 1:2 fyrir því íslenska í riðlakeppni EM á Stade de France í síðasta mánuði.