Smalling missir af fyrsta leiknum

Chris Smalling í baráttu við Kolbein Sigþórsson í leik Englands …
Chris Smalling í baráttu við Kolbein Sigþórsson í leik Englands og Íslands á EM 2016. AFP

Chris Smalling, varnarmaður Manchester United, verður fjarri góðu gamni þegar liðið mætir Bournemouth í fyrstu umferð ensku úrvaldeildarinnar í knattspyrnu karla á Vitality-vellinum 14. ágúst næstkomandi.  

„Það tóku sig upp gömul meiðsli hjá Smalling á æfingu í vikunni og eftir að sjúkraþjálfarar liðsins skoðuðu hann varð ljóst að hann verður ekki með í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar gegn Bournemouth,“ sagði José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, á blaðamannafundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert