Vilja fá Balotelli í sínar raðir

Mario Balotelli fagnar marki fyrir Liverpool.
Mario Balotelli fagnar marki fyrir Liverpool. AFP

Hollenska félagsliðið Ajax hefur áhuga á að kaupa ítalska framherjann Mario Balotelli frá Liverpool að því gefnu að liðið komist áfram í undankeppni Meistaradeildarinnar. Þessu greinir ítalski íþróttafjölmiðillinn Di Marzio frá. 

Balotelli mun hafa verið boðið til Napoli sem vantar framherja eftir söluna á Gonzalo Higuain en Napoli sýndi lítinn áhuga. Þá hefur Balotelli fengið boð frá ítalska félagsliðinu Pescara sem hann á að hafa afþakkað. Ajax þykir nú líklegasti áfangastaðurinn. 

Balotelli, sem er 25 ára gam­all, var á láni frá Li­verpool hjá AC Mil­an á síðustu leiktíð, en fé­lagið ákvað að kaupa hann ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert