Leikur Llorente með Gylfa Þór?

Spænski framherjinn Fernando Llorente á æfingu með Sevilla.
Spænski framherjinn Fernando Llorente á æfingu með Sevilla. AFP

Swansea City hefur áhuga á að festa kaup á spænska landsliðsframherjanum Fernando Llorente sem er á mála hjá Sevilla. Llorente á að fylla það skarð sem Bafetimbi Gomis skildi eftir sig, en hann gekk nýverið til liðs við Marseille á lánssamningi. 

Llorente sem er 31 árs gamall hefur orðið heimsmeistari og Evrópumeistari með Spáni og varð þrisvar sinnum ítalskur meistari með Juventus, en auk þess að leika með ítalska liðinu og Sevilla hefur hann leikið með Athletic Bilbao á ferli sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert