Íslensku landsliðsmennirnir Gylfi Þór Sigurðsson, Jón Daði Böðvarsson og Hörður Björgvin Magnússon voru varamenn hjá sínum liðum í ensku deildabikarkeppninni í kvöld.
Jón Daði kom inn á sem varamaður á 69. mínútu þegar Wolves sigraði Cambridge á heimavelli 2:1.
Gylfi sat allan tímann á bekknum hjá Swansea en liðið vann 3:1 útisigur á Peterborough.
Hörður kom ekki heldur við sögu hjá Bristol City en liðið gerði 1:1 jafntefli við Scunthorpe á útivelli.
Liverpool vann Burton Albion 5:0 á útivelli og skoraði Daniel Sturridge tvívegis. Chelsea spilaði einnig í kvöld og vann Bristol Rovers 3:2 á heimavelli. Michy Batshuayi skoraði tvívegis fyrir Chelsea.