Jóhann Berg og Burnley úr leik

Jóhann Berg leikur með Burnley.
Jóhann Berg leikur með Burnley. Ljósmynd/http://www.burnleyfootballclub.com/

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í enska úrvalsdeildarliðinu Burnley féllu í kvöld úr leik í enska deildabikarnum eftir óvænt tap í framlengdum leik gegn smáliði Accrington Stanley.

Lokatölur urðu 1:0 fyrir Accrington sem leikur í ensku D-deildinni. Markalaust var að loknum 90 mínútum en Accrington skoraði sigurmarkið á lokasekúndum framlengingar.

Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn með Burnley og lagði upp nokkur ágæt færi fyrir félaga sína.

Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Fulham sem sló úrvalsdeildarlið Middlesbrough úr keppni með 2:1 eftir framlengdan leik.

Önnur úrslit:
Morecambe - Bournemouth 1:2
Sunderland - Shrewsbury 1:0

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert