Arsenal í framherjakapphlaupi

Arsene Wenger verður við stjórnvöl Arsenal á næsta tímabili.
Arsene Wenger verður við stjórnvöl Arsenal á næsta tímabili. AFP

Arsenal hefur áhuga á að fá til sín framherjann Lucas Pérez frá spænska liðinu Deportivo samkvæmt blaðamanni BBC, David Ornstein, sem þykir afar áreiðanleg heimild í málefnum Arsenal. 

Enska úrvalsdeildarliðið Everton var komið langleiðina með að kaupa Pérez en nú hefur Arsenal bæst við kapphlaupið á lokametrum leikmannagluggans.

Lucas Pérez er 27 ára Spánverji sem gekk í raðir Deportivo í fyrra. Þrátt fyrir að Deportivo hafi endað í 15. sæti deildarinnar náði hann að skora 17 mörk í 37 leikjum á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert