Leicester að fá leynivopn?

Islam Slimani er öflugur leikmaður.
Islam Slimani er öflugur leikmaður. AFP

Englandsmeistarar Leicester City eru að ganga frá kaupum á alsírska landsliðsmanninum Islam Slimani sem leikur með Sporting Lissabon. Það er spænska blaðið AS sem fullyrðir þetta í dag.

Slimani, sem er 28 ára gamall, skoraði 31 mark í 44 leikjum fyrir portúgalska liðið á síðustu leiktíð en það vakti áhuga margra stórliða á honum.

Sporting hefur verið í viðræðum við bæði Leicester og WBA en svo virðist sem Leicester hefði vinninginn en félagið borgar um það bil 30 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri liðsins, vildi ólmur styrkja sóknina fyrir komandi átök í Meistaradeild Evrópu en liðið mætir þar Porto, Club Brugge og FC Köbenhavn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert