Fer Balotelli til Palermo?

Mario Balotelli gæti verið á leið til Palermo.
Mario Balotelli gæti verið á leið til Palermo. AFP

Ítalska A-deildarliðið Palermo vill fá Mario Balotelli, framherja Liverpool, áður en félagaskiptaglugginn lokar. Hann mun þó lækka verulega í launum.

Balotelli, sem er 26 ára gamall, kom til Liverpool frá AC Milan árið 2014, en hefur ekki enn tekist að finna sig.

Hann var lánaður til Milan á síðustu leiktíð en ítalska félagið ákvað þó ekki að nýta sér forkaupsréttinn á honum. Hann hefur verið orðaður við Palermo og Nice að undanförnu en svo virðist sem hann sé á leið til Palermo.

Ítalska félagið hefur lagt fram tilboð í hann en Balotelli þarf þó að sætta sig við launalækkun ætli hann sér að spila með Palermo. Forseti félagsins er vongóður um að hann komi.

„Við erum búnir að leggja fram tilboð í Balotelli og nú er boltinn hjá Liverpool. Hann er með há laun og mikið af auglýsingasamningum, þannig að þetta er ekki auðvelt, en ég held samt að Palermo sé réttur staður fyrir hann,“ sagði Balotelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert