Saza til West Ham

Slaven Bilic, stjóri West Ham.
Slaven Bilic, stjóri West Ham. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið West Ham hefur fengið til liðs við sig framherjann Simone Zaza.

Zaza er 25 ára gamall Ítali sem kemur til West Ham að láni frá ítalska meistaraliðinu Juventus sem hann hefur leikið með frá árinu 2015.

Framherjinn kemur til West Ham að láni út tímabilið en fari svo að West Ham vilji kaupa hann þarf það að greiða fyrir leikmanninn 17 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert