Luiz til Chelsea á nýjan leik

David Luiz í baráttu við Cesc Fabregas í leik PSG …
David Luiz í baráttu við Cesc Fabregas í leik PSG og Chelsea. AFP

Brasilíski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, David Luiz, er genginn til liðs við Chelsea frá franska félaginu PSG. Luiz lék með Chelsea á árunum 2011 til 2014 en þá söðlaði hann um og gekk til liðs við PSG fyrir 50 milljónir punda. Kaupverðið á Luiz að þessu sinni er 30 milljónir punda. 

Luiz hefur auk fyrrgreindra liða leikið með Benfica og Vitória á ferli sínum, auk þess að leika 55 leiki fyrir brasilíska landsliðið og skora í þeim leikjum þrjú mörk. Luiz er fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs Chelsea í sumar, en áður hafði félagið tryggt sér þjónustu Marcos Alonso, N'Golo Kante og Michy Batshuayi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert