Metaðsókn hjá Tottenham

Byrjunarlið Tottenham sem mætti Mónakó.
Byrjunarlið Tottenham sem mætti Mónakó. AFP

Nýtt met hjá ensku félagsliði var sett í gærkvöld þegar Tottenham tók á móti Mónakó í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Aldrei hafa fleiri áhorfendur séð heimaleik hjá ensku liði í keppninni. Leikurinn fór fram á Wembley, ekki á White Hart Lane, heimavelli Tottenham, og þar voru 85.011 áhorfendur.

Tottenham náði ekki að standa undir væntingum með allan þennan stuðning og tapaði fyrir franska liðinu, 1:2, í sínum fyrsta meistaradeildarleik í sex ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert