Zlatan hefur sýnt fram á ágæti sitt

Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Manchester United, skorar gegn Manchester City um …
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Manchester United, skorar gegn Manchester City um síðustu helgi. AFP

Zlatan Ibrahimovic hefur sýnt það og sannað að hann sé einn af bestu leikmönnum heims með því að vera á skotskónum með Manchester United í upphafi leiktíðar. Þetta segir Gianluca Zambrotta, fyrrum samherji Ibrahimocic hjá AC Milan og Juventus.

Zlatan Ibrahimovic hefur aðlagast lífinu vel á Old Trafford og er markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Diego Costa, leikmanni Chelsea, og Michail Antonio, leikmanni West Ham United, með fjögur mörk í jafn mörgum leikjum.  

„Ég lék með Zlatan í tvö ár hjá Juventus og fjögur ár hjá AC Milan þannig að ég þekki kauða mjög vel. Ég þekki það af eigin raun hversu mikill fagmaður hann er og góður persónuleiki. Zlatan mun hjálpa liðinu að ná fyrri styrk sínum," sagði Zambrotta í samtali við Sky Sports.

„Það kemur mér ekkert á óvart að hann sé nú þegar farinn að láta til sín taka í markskorun hjá Manchester United þar sem ég hef æft með honum og veit að hann er frábær leikmaður. Hann hefur hins vegar staðfest það sem ég vissi, það er hversu öflugur leikmaður hann er,“ sagði Zambrotta enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert