Conte hyggst taka til

Gary Cahill í leik með Chelsea.
Gary Cahill í leik með Chelsea. AFP

Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, er sagður ætla að taka til í herbúðum liðsins í janúar og skipta út varnarmönnum sem hann er ósáttur við.

Branislav Ivanovic og Gary Cahill gætu verið á förum frá Lundúnaliðinu þegar félagaskiptaglugginn verður opnaður í janúar, en varnarleikur Chelsea-liðsins hefur ekki verið upp á marga fiska í undanförnum leikjum.

Chelsea steinlá fyrir Arsenal á Emirates Stadium í gær, 3:0, og hefur nú fengið á sig 12 mörk í síðustu fjórum leikjum.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert