De Bruyne úr leik næstu vikurnar

Kevin De Bruyne á fleygiferð með boltann í leiknum gegn …
Kevin De Bruyne á fleygiferð með boltann í leiknum gegn Swansea í gær. AFP

Belginn Kevin De Bruyne, sem hefur spilað frábærlega með toppliði Manchester City á leiktíðinni, verður frá keppni næstu vikurnar.

De Bruyne, sem knattspyrnustjórinn Pep Guardiola hefur hrósað í hástert, haltraði af velli á 80. mínútu í 3:1 sigri City gegn Swansea í gær og nú er ljóst að hann verður frá keppni næstu fjórar vikurnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert