Góður sigur hjá Jóhanni og félögum

Jóhann Berg í leiknum gegn Watford í kvöld.
Jóhann Berg í leiknum gegn Watford í kvöld. Ljósmynd/twitter

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley unnu góðan sigur á Watford í lokaleik 6. umferðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Tvö skallamörk tryggðu Burnley sigurinn. Það fyrra skoraði Jeff Hendrick á 34. mínútu og það síðara skoraði Michael Keane á 51. mínútu.

Jóhanni Berg var skipt útaf í uppbótartíma en Jóhann átti góðan leik. Hann átti fína spretti fram á við og tók þátt virkan þátt í varnarleik liðsins.

Burnley hefur þar með 7 stig eins og Watford eftir sex umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert