Fótbrýt þig ef Pogba kemur ekki

Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, skýtur að marki Leicester City …
Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, skýtur að marki Leicester City um helgina. AFP

Umboðsmaðurinn Mino Raiola sem hefur meðal annars Zlatan Ibrahimovic og Paul Pogba, leikmenn Manchester United, á sínum snærum segir að Zlatan hafi hótað sér öllu illu ef Pogba myndi ekki fylgja sænska framherjanum til Manchester United.  

„Zlatan gerði mér grein fyrir því að hann myndi fótbrjóta mig ef Pogba kæmi ekki til Manchester United,“ sagði Raiola í samtali við hollenska dagblaðið Volkskrant.nl.

Raiola sá til þess að ekkert varð úr barsmíðum Zlatans með því að gera Pogba að dýrasta leikmanni heim þegar hann gekk til liðs við Manchester United frá Juventus á tæpar 100 milljónir punda.

Pogba braut ísinn fyrir Manchester United í deildinni með marki sínu í 4:1 sigri Manchester United gegn Leicester City um helgina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert