Rooney mun koma sterkur til baka

Wayne Rooney horfir á félaga sína hjá Manchester United gegn …
Wayne Rooney horfir á félaga sína hjá Manchester United gegn Leicester City á laugardaginn. AFP

Chris Smalling, leikmaður Manchester United, segir að Wayne Rooney, fyrirliði liðsins, sé enn afar mikilvægur innan leikmannahópsins. Rooney var ekki í byrjunarliði Manchester United þegar liðið lagði Leicester City að velli, 4:1, á laugardaginn, en Smalling segir Rooney hafa verið mikilvægan inni í klefanum í aðdraganda leiksins.  

Manchester United lék vel í fjarveru Rooney og spurning hvort að Rooney eigi afturkvæmt inn í byrjunarlið liðsins á næstunni. Smalling kveðst vera þess fullviss að Rooney muni koma sterkur til baka inn í lið Manchester United eftir að hafa verið settur út úr byrjunarliði liðsins í þessum leik. 

„Rooney lét til sín taka í klefanum í búningsklefanum fyrir leikinn eins og vanalega. Hann hvatti okkur til dáða og lét sína stöðu ekki hafa áhrif á undirbúninginn. Rooney er lykilleikmaður hjá Manchester United og mikilvægur innan leikmannahópsins, bæði sem leikmaður og leiðtogi,“ sagði Smalling í samtali við fjölmiðla í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert