Jákvæðar fréttir af Coquelin

Francis Coquelin var miður sín eftir að hafa meiðst í …
Francis Coquelin var miður sín eftir að hafa meiðst í leiknum gegn Chelsea um síðustu helgi. AFP

Arsenal verður án miðjumannsins Francis Coquelin í næstu leikjum eftir að hann meiddist í hné gegn Chelsea um síðustu helgi.

Óttast var að meiðslin gætu verið mjög alvarleg en skoðun hjá læknum leiddi í ljós að svo væri ekki. Arsene Wenger greindi frá því á fréttamannafundi í dag að Coquelin yrði aðeins frá keppni í þrjár vikur.

Coquelin meiddist í hné í leik gegn West Bromwich Albion á síðustu leiktíð og var þá frá keppni í meira en tvo mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert