Dramatískur sigur Newcastle United

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Newcastle United, gat leyft sér að brosa …
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Newcastle United, gat leyft sér að brosa eftir sigur liðsins gegn Norwich City í kvöld. AFP

Dwight Gayle skoraði þrennu fyrir Newcstle United í spennuþrungnum 4:3 sigri liðsins gegn Norwich City í ensku B-deildinni á St. James' Park í kvöld. Newcastle United var 3:2 undir þegar venjulegum leiktíma lauk, en tvö mörk liðsins í uppbótartíma tryggði liðinu sigurinn. 

Graham Dorrans, Cameron Jerome og Jacob Murphy skoruðu mörk Norwich City í leiknum. Yoan Gouffran jafnaði metin fyrir Newcastle United á fimmtu mínútu í uppbótartíma leiksins og Dwight Gayle tryggði Newcastle United sigurinn með þriðja marki sínu í leiknum mínútu síðar. 

Norwich City er í öðru sæti deildarinnar með 20 stig, en Newcastle United hefur 16 stig eftir þennan sigur og situr í níunda sæti deildarinnar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert