Furðuleg fagnaðarlæti (myndskeið)

Alexsandar Mitrovic.
Alexsandar Mitrovic. Ljósmynd/nufc.co.uk

Serbneski sóknarmaðurinn Aleksandar Mitrovic hálfpartinn réðst á samherja sinn í Newcastle, Dwight Gayle, eftir að Gayle tryggði liðinu ótrúlegan 4:3-sigur á Norwich í ensku B-deildinni í knattspyrnu í gær.

Newcastle var 3:2 undir þegar komið var fram á fimmtu mínútu uppbótartíma en þá jafnaði Yoan Gouffran metin. Gayle fullkomnaði svo þrennuna sína með sigurmarki mínútu síðar.

Newcastle-menn fögnuðu sigurmarki Gayle innilega en Mitrovic virtist gjörsamlega missa vitið, og fór með Gayle nánast eins og að um slagsmál væri að ræða. Sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert