Andar köldu á milli Agüero og Guardiola?

Pep Guardiola og Sergio Agüero ræða saman.
Pep Guardiola og Sergio Agüero ræða saman. AFP

Argentínski framherjinn Sergio Agüero er ekki fullkomlega sáttur í herbúðum Manchester City, eftir því sem breski miðillinn Daily Mirror greinir frá í morgun. Það andar víst köldu á milli hans og Pep Guardiola sem tók við stjórn City í sumar.

Agüero hefur skorað ellefu mörk í tíu leikjum á tímabilinu, en var ekki í byrjunarliðinu í 4:0-tapi City fyrir Barcelona í Meistaradeildinni í vikunni. Það á bara að hafa aukið á spennuna á milli hans og Guardiola.

Þá var Vincent Kompany fyrirliði liðsins heldur ekki í byrjunarliðinu og greinir miðillinn frá því að hann gæti einnig farið að hugsa sér til hreyfings.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert