Fuchs samdi við Englandsmeistarana

Christian Fuchs.
Christian Fuchs. AFP

Austurríkismaðurinn Christian Fuchs, vinstri bakvörðurinn öflugi í liði Englandsmeistara Leicester City, hefur framlengt samning við félagið til þriggja ára.

Fuchs kom til Leicester frá þýska liðinu Schalke fyrir síðustu leiktíð og óhætt er að segja að hann hafi lagt sitt af mörkum af fyrsta Englandsmeistaratitli Leicester. Hann var einn besti bakvörður deildarinnar á síðustu leiktíð.

Fuchs á að baki 78 leiki með austurríska landsliðinu og lék með því gegn Íslendingum á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert