Terry er klár gegn United

John Terry.
John Terry. AFP

John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur náð sér góðum af meiðslum sínum og er til í slaginn fyrir stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar Manchester United heimsækir Chelsea.

Terry meiddist á ökkla gegn Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea fyrir nokkrum vikum og Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, þvertók fyrir þær sögusagnir að bakslag hefði hlaupið á endurhæfinguna.

Leikur Chelsea og Manchester United fer fram á sunnudaginn og hefst klukkan 15, en um er að ræða fyrstu heimsókn José Mourinho á sinn gamla heimavöll síðan hann var rekinn fyrir rétt um ári síðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert