Terry missir af stórleiknum

John Terry.
John Terry. AFP

John Terry fyrirliði Chelsea kemur nær örugglega til með að missa af stórleik sinna manna gegn Manchester United á sunnudaginn.

Liðin eigast við á Stamford Bridge og José Mourinho, stjóri United, mætir þar með á sinn gamla heimavöll í fyrsta skipti eftir að honum var sagt upp störfum fyrir tæpu ári.

Terry glímir við meiðsli í ökkla og hefur ekkert spilað síðan í leiknum á móti Swansea snemma í september. Reiknað hafði verið með því að fyrirliðinn yrði klár í slaginn um helgina en meiðslin tóku sig upp að nýju og gat hann ekki æft með liðinu í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert