Hvetur Rooney til að fara

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Netútgáfa breska blaðsins The Sun greinir frá því að José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hafi tjáð fyrirliðanum Wayne Rooney að hann eigi að fara vilji hann fá að spila reglulega.

Rooney, sem í dag fagnaði 31 árs afmæli sínu, hefur ekki verið í náðinni hjá Mourinho síðustu vikurnar og hefur mátt sætta sig við að vera ekki í byrjunarliðinu í síðustu þremur deildarleikjum liðsins.

Rooney var ekki í leikmannahópnum í leiknum á móti Chelsea í gær, en hann var sagður vera meiddur.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert