Óvenjuleg innrás á æfingu City

Leikmenn Manchester City í þyrpingu.
Leikmenn Manchester City í þyrpingu. AFP

Leikmenn Manchester City urðu fyrir óvenjulegri innrás á æfingu liðsins í morgun, en Twitter-síða félagsins birti myndir af æfingu í morgun.

Stór hópur dúfna gerði sig þá velkominn á æfingunni og var skarinn svo mikill að athygli vakti, eins og sjá má í færslunni hér að neðan.

Leikmenn City undirbúa sig nú fyrir viðureign við granna sína í Manchester United, en liðin mætast í sextán liða úrslitum í enska deildabikarnum á miðvikudagskvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert