Stjóri Jóns Daða rekinn

Jón Daði Böðvarsson leikur með Wolves en liðið er nú …
Jón Daði Böðvarsson leikur með Wolves en liðið er nú þjálfaralaust. Heimasíða Wolves

Walter Zenga hefur verið rekinn úr starfi sem knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Wolves. Með liðinu leikur íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson.

Zenga tók við Wolves í lok júlí og var því rekinn eftir tæpa þrjá mánuði í starfi. Gengi Wolves hefur ekki verið gott í síðustu leikjum. Liðið hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum og er í 18. sæti B-deildarinnar.

Zenga, sem er fyrr­ver­andi markvörður ít­alska landsliðsins í knatt­spyrnu, lék megnið af leik­manns­ferli sín­um með In­ter Milano. Hann lék 58 landsleiki fyrir Ítalíu og hefur stýrt Cat­ania, Pal­ermo, Samp­doria, Al-Shaab og Wolves á þjálfaraferlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert