Fer Rooney til Ítalíu?

Rooney hefur átt erfitt uppdráttar.
Rooney hefur átt erfitt uppdráttar. AFP

Fjölmiðlar á Ítalíu greina frá því að ítalska A-deildarliðið Inter Mílanó hafi áhuga á að fá Wayne Rooney, fyrirliða Manchester United, til liðs við sig.

Rooney hefur átt erfitt uppdráttar síðustu vikur og mánuði, bæði með Manchester United og enska landsliðinu, en hann hefur misst sæti sitt í byrjunarliðinu hjá báðum liðum. Hann hefur ekki verið í leikmannahópi Manchester-liðsins í síðustu leikjum, en hann ku vera meiddur.

Inter, sem leikur undir stjórn Hollendingsins Frank de Boer, hefur ekki byrjað tímabilið vel á Ítalíu og er sem stendur í 10. sæti deildarinnar.

Fleiri lið en Inter eru sögð áhugasöm að fá Rooney í sínar raðir og meðal þeirra er kínverska liðið Jiangsu Suning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert