Carrick er stórkostlegur

Michael Carrick og Wayne Rooney hafa ekki verið í byrjunarliði …
Michael Carrick og Wayne Rooney hafa ekki verið í byrjunarliði United í undanförnum deildarleikjum. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, var spurður út í miðjumanninn Michael Carrick á fréttamannafundi í dag og sparaði ekki hrósið.

United mætir Burnley á morgun í ensku úrvalsdeildinni, eftir sigur á Manchester City í deildabikarnum í vikunni, þar sem Carrick var fyrirliði.

„Það eina sem ég vil segja um hann er að hann er stórkostlegur, það er ekki spurning. Verð ég að stýra honum? Ég held það,“ sagði Mourinho.

„Ég get ekki búist við því sama frá Michael eins og frá Rashford og Herrera. Þegar hann er á vellinum þá gefur hann okkur mikilvæga hluti, stöðugleika í leiknum, og frelsi fyrir sóknarsinnaðri leikmenn í kringum hann. Hann er ekki bara leikmaður, hann er með mjög mikinn skilning á leiknum,“ sagði Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert