Coutinho vill vinna titla með Liverpool

Coutinho fagnar marki í leik með Liverpool í haust.
Coutinho fagnar marki í leik með Liverpool í haust. AFP

Brasilíski sóknartengiliðurinn Philippe Coutinho er ánægður hjá Liverpool og ætlar ekki að láta áhuga Barcelona á sér hafa truflandi áhrif að sögn fyrrverandi þjálfara hans í Brasilíu.

Coutinho, sem gekk til liðs við Liverpool frá ítalska liðinu Inter fyrir þremur árum, hefur leikið afar vel í byrjun leiktíðar. Enskir fjölmiðlar telja að Barcelona hafi áhuga á kappanum en þá myndi hann leika við hlið hins brasilíska Neymar.

„Markmið hans er að verða einn af tíu bestu leikmönnum í heimi,“ sagði Rodney Goncalves, fyrrverandi þjálfari Coutinho hjá Vasco da Gama, í viðtali við Daily Telegraph.

„Alltaf þegar við ræðum saman talar hann um hversu ánægður hann er hjá Liverpool. Hann vill vinna ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu með Liverpool,“ bætti Goncalves við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert