Martial á síðasta séns

Anthony Martial í leiknum gegn Arsenal.
Anthony Martial í leiknum gegn Arsenal. AFP

Anthony Martial, leikmaður Manchester United á Englandi, er á síðasta séns hjá félaginu en The Times greinir frá þessu.

Þessi ungi og efnilegi framherji kom til United frá Monaco fyrir síðustu leiktíð en hann sló í gegn og reyndist einn besti leikmaður liðsins undir stjórn Louis van Gaal.

Van Gaal var látinn taka poka sinn eftir tímabilið og var José Mourinho ráðinn í hans stað en Martial hefur ekki tekist að heilla að Mourinho.

Martial var ekki í hópnum hjá United gegn Feyenoord í Evrópudeildinni á dögunum og þá var Mourinho ósáttur með spilamennsku hans gegn Arsenal síðustu helgi.

Samkvæmt The Times fær Martial eitt tækifæri í viðbót til að sanna sig annars mun Mourinho láta hann fara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert