Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United á Englandi, er ánægður með franska sóknarmanninn Anthony Martial en hann gerði tvö mörk í enska deildabikarnum á dögunum eftir að hafa verið utan hóps í leikjunum þar á undan.
Martial átti frábært fyrsta tímabil með United á síðustu leiktíð en hefur ekki tekist að fylgja því eftir undir stjórn Mourinho.
Franski landsliðsmaðurinn var tekinn úr hópnum eftir 1:1 jafnteflið gegn Arsenal en hann var mættur aftur í liðið í 4:1 sigrinum á West Ham United í 8-liða úrslitum bikarsins en Martial gerði þar tvö mörk.
„Martial er að leggja sig meira fram en hann gerði, svona ef ég á að vera hreinskilinn. Það hjálpar auðvitað að skora tvö mörk, þá kemur leikgleðin aftur,“ sagði Mourinho.