Öflugur sigur hjá Boro

Middlesbrough og Hull eigast við í kvöld.
Middlesbrough og Hull eigast við í kvöld. AFP

Middlesbrough lagði Hull City 1:0 í 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á Riverside-leikvanginum. Gaston Ramirez gerði sigurmarkið.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Leik lokið. 

60. MARK! 1:0. Gaston Ramirez að skora eftir sendingu frá Viktor Fischer. Heimamenn í góðum málum.

Hálfleikur. 

40. Staðan er markalaus áfram. Það eru ekki miklar líkur á markaleik í þessari botnbaráttu en vonum samt það besta. Heill hálfleikur eftir!

1. Leikurinn er hafinn.

0. Lýsingin verður uppfærð jafnóðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert