Hörður mætir Jóhanni í bikarnum

Hörður Björgvin Magnússon var í sigurliði í kvöld.
Hörður Björgvin Magnússon var í sigurliði í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslensku landsliðsmennirnir Hörður Björgvin Magnússon og Jóhann Berg Guðmundsson mætast með liðum sínum, Bristol City og Burnley, í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu en það varð ljóst í kvöld þegar liðin unnu leiki sína í 3. umferðinni.

Jóhann Berg lék ekki með Burnley sem vann Sunderland, 2:0, en hann var hvíldur vegna meiðsla. Sam Vokes og Andre Gray skoruðu mörkin.

Hörður Björgvin Magnússon lék allan tímann í vörn Bristol City sem vann Fleetwood á útivelli, 1:0. Eggert Gunnþór Jónsson lék á miðjunni hjá Fleetwood en var skipt af velli á 63. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert