Gylfi fékk 8 í einkunn

Gylfi Þór Sigurðsson og Tom Carroll fagna sigurmarki Gylfa.
Gylfi Þór Sigurðsson og Tom Carroll fagna sigurmarki Gylfa. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson fékk næsthæstu einkunn allra leikmanna í 3:2-sigri Swansea á Liverpool þegar liðin mættust á Anfield í dag.

Sjá frétt mbl.is: Gylfi hógvær eftir sigurmarkið á Anfield

Gylfi Þór lagði upp eitt mark og skoraði sjálfur sigurmarkið, en Sky gefur honum 8 í einkunn fyrir sína frammistöðu og liðsfélagi hans Tom Carroll fékk líka 8 í sínum fyrsta leik eftir að hafa verið keyptur í vikunni. Fernando Llorente, sem skoraði tvö marka Swansea, fékk 9.

Hjá Liverpool fékk Roberto Firmino 8 í einkunn, en hann skoraði bæði mörk Liverpool.

Sjá frétt mbl.is: Gylfi tryggði Sw­an­sea sig­ur gegn Li­verpool

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert