Coutinho ætlar að verða goðsögn

Coutinho með boltann í leik með Liverpool.
Coutinho með boltann í leik með Liverpool. AFP

Philippe Coutinho, leikmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, vill verða goðsögn hjá félaginu en hann skrifaði undir nýjan fimm ára samning við Liverpool í vikunni. 

Coutinho hefur lengi verið orðaður við félög eins og Barcelona en hann ákvað að vera áfram hjá Liverpool þess í stað. 

„Það var engin ástæða til að bíða með að skrifa undir nýjan samning. Ég sé metnaðinn hjá félaginu á hverjum degi og mér fannst þetta rétti tíminn til að framlengja samninginn minn við Liverpool.“

„Hjartað mitt er hjá Liverpool og ég hef aldrei hugsað um neitt annað félag. Ég vil komast í hóp leikmanna eins og Kenny Daglish, Ian Rush, Alan Hansen, Graeme Souness, Luis Suarez og Steven Gerrard. Þeir eru goðsagnir og ég vil ná þeim hæðum með Liverpool. Til þess þarf ég líka að vinna titla en ég get séð Liverpool vinna fullt af titlum á næstu árum,“ sagði Brasilíumaðurinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert