Lallana að gera nýjan samning

Adam Lallana og Jürgen Klopp.
Adam Lallana og Jürgen Klopp. AFP

Enski landsliðsmaðurinn Adam Lallana er sagður vera búinn að samþykkja að gera nýjan fjögurra ára samning við Liverpool.

Með nýja samningnum sem Lallana mun skrifa undir kemur hann til að fá 120 þúsund pund í vikulaun en sú upphæð jafngildir 17,5 milljónum króna.

Lallana er 28 ára gamall og kom til Liverpool frá Southampton árið 2014. Hann hefur verið einn besti leikmaður liðsins á tímabilinu en Lallana hefur skorað 7 mörk og hefur lagt upp 7 í þeim 18 leikjum sem hann hefur verið í byrjunarliðinu í deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert